Skógarúlfar fóru í bíó
19 Feb 2016
Bóka- og bíódagar í Hafnarfirði
Múmínálfarnir
Skógarúlfar fóru í Bæjarbíó í morgun, þar sem þau fengu að sjá teiknimynd um Múmínálfana. En sýningin var af tilefni bóka- og bíóhátíðar sem haldin er þessa dagana. Tilgangur nýrrar Bóka- og bíóhátíðar barnanna er að efla áhuga barna enn frekar á lestri og læsi í víðum skilningi og mun hátíðin styðja við læsisverkefni leik- og grunnskóla bæjarins sem í gangi hefur verið síðustu misseri.
Frétt um ferðina